English version below
Guðrún Helga Kristjánsdóttir, góðvinkona mín, var ein af þeim sem sýndi útskriftalínu sína í Listasafninu á dögunum. Eins og ég vissi þá var línan hin glæsilegasta og ég bilaðist úr stolti hérna hinu megin við hafið. Hér var hugsað út í öll helstu smáatriði sem heilla augu áhorfenda.
Guðrún er ein af sjálfstæðari konum sem ég þekki. Hún hefur alltaf haft stóra drauma og það veitir mér innblástur að fylgjast með slíku fólki. Aðeins 18 ára flutti hún til London þar sem hún starfaði meðal annars sem verslunarstjóri í Arragant Cat, hún bjó í Kína um árabil, Köben og svo aftur London þar sem hún tók eitt ár af fatahönnunarnáminu sínu.
Ég heyrði í hönnuðinum og bað hana að deila með okkur sinni ásýnd – svörin finnið þið að neðan.
Mig langar langar langar svooo í þennan jakka. Hann er efstur á óskalista.
Andrea okkar var ein af módelunum. Alltaf flott!
Fallegt bak –
Ermar með pýfum
Ég hef alltaf verið hrifin af grófum rennilásum og við Guðrún Helga eigum það greinilega sameiginlegt. Rúskinsamfestingur með detailum sem gera lúkkið.
Myndir: Baldur Kristjánsson
Hver er Guðrún Helga?
Fatahönnuður, móðir, dóttir, eiginkona, systir, vinkona, mágkona, svilkona, tengdadóttir og stuðkona.
Hvaðan fékkstu innblástur fyrir línuna?
Línan var unnin eftir persónugerð sem ég mótaði í huganum. Persóna sem ólst upp við erfiðan uppeldisramma, strangar reglur og mikla óreglu. Stundum líður henni eins og hún sé bundin niður við rótina sína. Hún hefur samt brotist út úr fjötrum æskunnar, fer sínar eigin leiðir, er full af sjálfstrausti og er hinn mesti töffari.
Hvað leggur þú áherslu á í hönnun línunna?
Að hún væri úr góðum efnum – alls ekki gerviefnum. Að flíkurnar væru vandlega sniðnar, fágaðar, óvenjulegar en um leið tímalausar og að ég gæti séð fyrir mér aðal skvísur bæjarins klæðast flíkunum.
Hver eru þín framtíðar plön í hönnun?
Til að byrja með mun ég einbeita mér að því að fylgja eftir þessari línu næsta árið og í leiðinni afla mér meiri reynslu í þessum geira.
_______
Það sem er svo frábært við útskriftasýningar Fatahönnnnardeildar Listaháskólans er hversu ólíkar fatalínurnar eru. Margir gerðu mjög vel en ég hefði viljað sjá fleiri myndir og meiri umfjöllun um framtíðarfólkið okkar í fatahönnun. Kannski hefur það farið fram hjá mér? Ef einhver á góðan link má sá hinn sami deila honum með mér. Ég er spennt að fá að sjá meira af því sem var sýnt í Listasafninu þetta kvöldið.
Áfram Íslensk hönnun! Og áfram Guðrún Helga!
//
One of my best friend has got a lot of talent! She is graduating from fashion design from The School of Art in Iceland. Above you can see the collection she designed. I really like it – wearable, timeless in fabulous fabrics.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg