fbpx

GÓÐAN DAGINN

INSPIRATIONÍSLENSK HÖNNUNLÍFIÐ

Góðan daginn!

1743016_994766423876528_2147260685_n

 

 

Dagurinn byrjaði vel hjá mér. Pósturinn Páll gladdi mig með tveimur pökkum í póstkassanum – alltaf ánægjulegt. Annar var frá Net-A-Porter (sýni ykkur síðar hvað leyndist þar) en hinn frá UN Women og sá gladdi hjartað. Ég hef nefnilega beðið spennt eftir að fá að taka þátt í að Fokk Ofbeldi herferðinni sem fram fer á Íslandi þessa dagana.

10997111_10152743126132568_1650797084_n 10961682_10152743126172568_612253629_n

Í dag, 20.febrúar er síðasti dagurinn sem armbandið er í sölu og því tilvalið að láta það ekki fram hjá sér fara heldur nota daginn í að styrkja þetta frábæra framtak. Átakinu er ætlað að vekja fólk til vitundar um útbreiddasta mannréttindabrot í heiminum í dag, kynbundið ofbeldi.

Þið finnið armbandið í sölu í Lyfju, Apótekinu og Heilsuhúsinu á litlar 2000 krónur.

Ég hef oft haft orð á því að föstudagar séu hinir bestu dagar til blómakaupa. Ég bið ykkur kæru lesendur, að sleppa blómakaupum í dag og fjárfesta heldur í þessu flotta armbandi sem gefur meira en bara lúkkið – ég er allavega með hlýju í hjartanu við að bera það.

Góða helgi yfir hafið til ykkar og FOKK OFBELDI!

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR

STÍLLINN Á INSTAGRAM: EVA KATRÍN

Skrifa Innlegg