fbpx

FLÓAMARKAÐUR FYRIR UMHYGGJU

FATASALA

 Ég má til með að segja ykkur frá Flóamarkaði sem að haldinn verður á KEX um næstu helgi, laugardaginn 5.oktober. Seljendur leigja borð og fer sá peningur óskertur til Umhyggjufélag til stuðnings langveikum börnum og fjölskyldum þeirra. Fallegt!

flea-market-1

Það eru nokkur laus borð í boði en hér: (linneaahleclaar@hotmail.com) getið þið haft samband ef að þið eruð með fullt fataherbergi, geymslu af gömlu dóti eða annað slíkt sem að hentar fyrir markað sem þennan.

Að halda þetta á KEX skapar stemningu sem að við finnum ekki annarsstaðar. Þið sem að eigið leið hjá í 101 um helgina, kíkið endilega við og gerið góð kaup af allskonar varningi eða þó að það væri ekki nema til þess að fá sér kaffi, sýna sig og sjá aðra.

Góða skemmtun! Og þið sem að eruð að fara að selja, gangi ykkur vel.

xx,-EG-.

DAGSINS

Skrifa Innlegg