fbpx

ELÍSA ÓSK

FÓLK

Þegar að litla systir mín, Ingibjörg,  útskrifaðist langaði mig svo til þess að gefa henni persónulega gjöf. Ég var með valkvíða á hugmyndir og fann enga sem að ég virkilega var sátt við.

DSCF5896 DSCF5899

En svo var ég sniðug, eða heppin að fatta hana Elísu.
Elísa Ósk Viðarsdóttir er íslenskur ungur listamaður með mikla hæfileika.
Hún er ótrúleg þegar að kemur að því að teikna fólk og ég hef ekki séð neinn sem að er jafn klár í því og hún.

Nýlega hefur hún breytt örlítið um stefnu í sköpun sinni þar sem að hún gerir ýmis ævintýri út frá útliti fólksins sem að hún tekur fyrir. Þar féll ég fyrir henni og bað hana um að hjálpa mér að gera hina fullkomnu útskriftagjöf.

Eftir að ég sendi henni andlitsmynd af systur minni þá teiknaði hún myndina í ævintýrastíl.
Það sjá allir sem að þekkja Ingibjörgu að þetta er hún – gæti verið ljósmynd, hún nær henni svo vel.

DSCF6682 DSCF6685

Ég verð að mæla með henni eins mikið og ég get vegna þess hversu ótrúlega ánægð ég er með útkomuna á minni mynd. Ég vil meina að þetta sé hið fullkomna listaverk til að gefa –  Tímalaus gjöf sem gleður.
Finnst ykkur þetta ekki fínt !!?

Meira : HÉR

xx,-EG-.

ISABEL MARANT X H&M

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Sigríður

    11. June 2013

    Vááááá hvað þetta er geðveikt vel gert! Systir þín hefur örugglega grenjað úr ánægju!

  2. Edda Sigfúsdóttir

    11. June 2013

    Þetta er sjúklega flott!!

  3. Hrafnhildur

    11. June 2013

    Ekkert smá fallegt !! :)

  4. Arna María

    12. June 2013

    Vá hvað þetta er líkt henni ! Ekkert smá flott og frumleg gjöf :)

  5. Katrín Andrés

    13. June 2013

    Æðisleg mynd og æðisleg gjöf! Alltaf jafn gaman að skoða elsku Elísabet. Knús