Í dag er frídagur og við fjölskyldan ætlum að skella okkur í dýragarð. Hér er því spenna á heimilinu!
Ég var í þann mund að fara að loka tölvunni þegar ég rakst á póst frá bloggaranum Tinnu Rún. Hann kom upp á besta tíma, rétt fyrir brottför að hitta öll alvöru dýrin.
Tinna, sem er klæðskeranemi, handteiknar dýra myndir í þessum kvössu sjarmerandi línum og selur svo eftirprentin í takmörkuðu upplagi. Verðið per mynd er 2000 krónur og því tilvalin tækifærisgjöf.
Ég sé þær fyrir mér nokkrar saman í barnaherbergi? En þær má eflaust nýta víðar.
Myndirnar eru einungis fáanlegar í gegnum e-mail : tinnakristofersdottir@gmail.com
Gangi þér vel Tinna!
Áfram Ísland!
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg