Það er alltaf veður fyrir leður í mínum bókum og þetta er eitt af þeim lúkkum sem fylgir ekki endilega trendum heldur virkar í mörg ár fram í tímann, þeas góð fatakaup. Ég kolféll fyrir nýrri dragt í verslun Andreu þegar ég var þar í síðustu viku, þá var hún ekki komin fram í búð en í dag finnið þið hana hangandi á slánni. Um er að ræða tvær flíkur, leðurbuxur og leðurjakka (drauma minna ef út í það er farið) sem hægt er að nota saman eða í sitthvoru lagi. Leðrið er svo vandað, mjúkt og gott að klæðast .. ég get ekki mælt meira með.
//
english.
Jakki: AndreA, Buxur: AndreA, Skór: Vagabond/Kaupfélagið (gamlir),
Toppur: AndreA, Teygja: AndreA ..
haha svakalega fjölbreytt fataval í þessari dressfærslu ;) úps.
Happy shopping!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg