Komin heim eftir vel heppnaða vinnuferð með Lindex Ísland. En þetta fólk á myndinni hér að neðan reka verslunina á Íslandi – þau Lóa, Albert og Anna Sóley dóttir þeirra.
Takk fyrir mig !
Helgin var æðisleg í alla staði og viðburðurinn ótrúlega vel heppnaður.
Ég klæddist …
Kimono: Aftur (ný kaup frá Íslandi)
Toppur: &OtherStories
Leðurbuxur: Lindex
Skór: 67/GS skór
Hálsmen: Zara
Þessar myndir hér að ofan eru ekki þær einu sem að ég tók. Og það vitið þið ef að þið þekkið mig rétt.
Ég hitti og talaði við mikið af áhugaverðu fólki. Einnig er ég með sterkar skoðanir á mínum uppáhalds flíkum úr línunni sem að ég sýni ykkur hið fyrsta.
Fylgist með því með :)
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg