Já þó að það hafi verið sandalaveður – þá notaði ég samt hlýju peysuna mína, frá Ginu.
Ég hef reyndar notað hana alveg fullt áður, en bara heima. Hún er svo æðislega kósý.
Peysa: GinaTricot
Bolur: Gestuz
Pils: Gamalt frá Centrum(rip)
Skór og sokkar: þeir sömu og í morgun.
…
Góða skemmtun þið sem að mætið upp í Ölgerð í kvöld. Ég hlakka til að sjá myndir.
Ég er sjálf að fara að mæta á mikilvægan atburð og viðurkenni að ég er með mörg fiðrildi í maganum yfir því.
Maðurinn á heimilinu keppir sinn fyrsta heimaleik í franska landinu. Við mæðgur mætum og styðjum okkar mann, og nýja liðið.
Allez Nantes ! ;)
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg