W Magazine birti myndir af daumaheimili fatahönnuðarins Angelu Missoni á dögunum. Ég færði myndirnar yfir á desktopið á tölvunni og hef flett reglulega í gegnum þær síðan. Mér fannst ég knúin til að deila þessari fegurð með ykkur afþví að þær gefa mér svo mikinn innblástur – húsið er næstum því fullkomið !?
Litir ráða ríkjum en ná þessum stöðuleika sem við leitumst mörg eftir. Falleg hönnun í bland við fjársjóði frá ítölskum flóamörkuðum. Þarna búa líka börn og það er gaman hvað þau fá mikið pláss með sín eigin húsgögn á víð og dreif um húsið – lifandi.
Innblástur dagsins á þessum ágæta sunnudegi. HÉR getið þið séð fleiri myndir og lesið meira um þessa ítölsku draumavillu.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg