fbpx

CÉLINE BOX BAG

FASHIONLANGARSHOPSTELDU STÍLNUM

Það eru nokkrir fallegir hlutir sem eru á mínum drauma lista. Eitt af þeim er þessi tiltekna Céline taska – Céline box bag. Hún er tímalaus og klassísk eign sem gengur við hvaða tilefni sem er. Taskan kemur í þremur stærðum og mörgum litum og eins og þið sjáið að neðan þá er hún allra, gengur við allskonar outfit, dags og nætur.

12 34 5 6 7 8 9 1 2 4 a b v b n

Ég þarf örugglega að bíða eitthvað lengur eftir að hún verði mín. Hún kostar nefnilega sitt og svona kaupir maður ekki ,,af því bara”. Mig hefur langað í nokkur ár og mun þurfa að bíða áfram engin spurning. Þó að mig langi mikið í eintak þá hef ég til dæmis ekki gert upp við mig hvaða lit ég myndi fjárfesta í. En í þessu tilviki er það ekkert endilega svört sem yrði fyrir valinu eins og oft þegar maður vill vera save með sitt. Það þarf að vanda valið.

Kannski smá tips til strákanna. Ef þið eruð í vandræðum með einhverskonar gjafir handa frúnni þá veit ég að þessi á eftir að slá í gegn. ;)

Þetta er , drauma ..

xx,-EG-.

SJÚK Í MALENE BIRGER AW 14

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Hófí

    5. February 2014

    Samkvæmt lauslegri netkönnun þá erum við að tala um að þessi taska er að kosta um 4þúsund dollara. Það gera tæpa hálfa milljón. Falleg er hún þó .. Draumar kosta ekkert! :)

    • Elísabet Gunn

      5. February 2014

      Já ég veit sko allt um það hvað hún kostar og vildi helst ekkert vera að taka það fram ;) haha
      Eins og ég segi … Taskan er á drauma listanum. Ég finn á mér að ég eigi eftir að finna hana á lokaútsölu þar sem hún bíður eftir mér einhverstaðar, einhvertímann. Ef ekki þar þá kannski second hand.
      Pörfekt að mínu mati.

  2. Karen A

    5. February 2014

    Klassísk of falleg :)

    • Elísabet Gunnars

      5. February 2014

      Já örugglega einn daginn :)

  3. svala

    20. June 2014

    god, var að eignast vinkonu sem vinnur hjá Celine, og ég má kaupa via hana, á massa afslætti!! þessi taska er unaður….sammala:)