fbpx

BYRJA DAGINN MEÐ STYLE BY

LÍFIÐMAGAZINE

photo

Ég veit ekkert betra en að fá í hendurnar skandinavísk tímarit. Ég fékk eitt slíkt um helgina þegar vinur okkar frá Svíþjóð kom færandi hendi með það til franska.

1174550_10152030482687568_1492512533_n

StyleBy er sænskt tískutímarit sem ofurbloggarinn og athafnarkonan Elin Kling kom á laggirnar. Fyrsta issue-ið kom út fyrir tæpum þremur árum og ég tók strax ástfóstri við það, en þá var ég búsett í Svíþjóð. Í dag fæ ég ekki jafn mörg tækifæri til að eignast eintak en stundum er ég  heppin, til dæmis í þetta skiptið.

Skemmtilega uppsett og þægilegt til lesturs, bæði uppsetningin og mögulega sú staðreynd að það er á sænsku sem hentar auðvitað vel fyrir mig.

Ofurfyrirsætan Frida Gustavsson er óaðfinnanleg á forsíðunni að þessu sinni ásamt því að sýna vortrendin á fallegum síðum inni í blaðinu. Columbine Smille, fashion director blaðsins, sá um stíliseringu þáttarins.
_

Jæja, ég hef klukkutíma til að lesturs að sinni. Best að byrja.

photo

Gleðilegan mánudag … ég hugsa að þessi vika verði bara nokkuð góð.

xx,-EG-.

ARMBÖND ALEXÖNDRU

Skrifa Innlegg