Í mörg ár höfum við Gunni reynt að finna hentugan tíma til að ganga upp að altarinu saman. Í sumar ætlum við loksins að láta verða af því og er undirbúningurinn því farinn á fullt. Við munum gifta okkur á Íslandi og planið er að stinga síðan strax af í brúðkaupsferð og njóta fyrstu daganna sem hjón, bara tvö.
Við getum ómögulega ákveðið hvert við eigum að fara og erum búin að fara fram og tilbaka í okkar pælingum. Ég held að það sé ekkert eitt rétt val í þessum málum og erum við nokkuð opin. Einu skilyrðin sem við setjum er hvítur sandur, tært haf, góður matur og kannski einhver hreyfing eða afþreying með – yoga á morgnanna væri til dæmis eitthvað sem við myndum elska. Er það nokkuð of mikið að biðja um?
Við erum allaveg ekki búin að ákveða neitt og mig langar að biðja um smá hjálp – kæru lesendur.
Getið þið gefið mér góð ráð eða tips? Hverju mælið þið með?
Sunnudagsmorguninn fer í að skoða nokkra áfangastaði og er það sunnudagsinnblásturinn þennan daginn. Þær eru margar myndirnar sem ég væri til í að stökkva inná – draumur!
//
Spending my Sunday morning looking at locations for our honeymoon. As you maybe know, me and Gunnar, are planing our wedding this summer in Iceland.
Do you have some good tips for me? Where should we go?
Mexico, Bora Bora, Maldavies, Bahamas, Grísku eyjarnar, Tæland, Bali … eða kannski bara aftur/alltaf Frakkland eða Ítalía?
Gleðilegan sunnudag! .. fylgist vel með á Trendnet í kvöld þegar spennandi fréttir fara í lofið.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg