Fyrirsögnin hljómar eins og Oral B hafi haft samband við mig og ég hafa fengið fullt greitt fyrir … þannig er þó ekki málið.
Síðasta sumar var tekin upp tannbursta auglýsing á fallega Íslandi. Mikið af íslendingum tóku þátt í verkefninu. Sigga Soffía á heiðurinn á verkinu en Pegasus sá um framleiðislu. Dansararnir voru öll klædd lausum klæðum í hvítu, bláu og gulu sem að sveifluðust til í vindinum – fallegt.
Með aðalhlutverk í auglýsingunni fór Hólmfríður Björnsdóttir dansari og fegurðardís.
Mér finnst auglýsingin mjög vel heppnuð. Ekki þessi týpiska “Ameriska” tannlækna leið þó að auglýsingin verði sýnd þar í landi. Flott kynning fyrir landið okkar.
Skrifa Innlegg