fbpx

PENELOPE CRUZ FYRIR LINDEX

Það er engin önnur en ofurbeibið Penelope Cruz sem að er nýtt andlit Lindex. Leikkonan prýðir þrjár auglýsingaherferðir fyrir vorið sem að allar eru ólíkar í sniðinu – Partýklæði, kósýklæði og sumarklæði.
Leikkonan bætist því í hóp með Gwyneth Paltrow og Reese Witherspoon sem að báðar gegndu sama hlutverki fyrir Lindex síðustu árin.

n-1317_1016 n-1317_1014 n-1317_1012

Ég þori að fullyrða að Penelope er eitt af fallegustu fljóðum Hollywood. Ein af þeim náttúrulegustu – það skín af henni glæsileikinn.
Það sem að kannski færri vita, er það að hún gengur með barn undir belti og þá eiga konur til með að geisla en frekar.

Lindex mun klárlega fá mikið út úr samstarfinu, ekki spurning.
Fyrsta línan af þremur kemur í íslensku verslunina í Smáralind þann 24. apríl.
Það er svo gaman að litla Ísland sé með í alþjóðlegu tengingunni sem að sænska Lindex skapar með þessum hætti.

Spennandi …

xx,-EG-.

 

WHAT A WOMAN

Skrifa Innlegg