Mér fannst ég lent í París þegar ég fletti í gegnum sólríku myndirnar frá tískuvikunni sem þar stendur hæst. Síðustu daga hefur verið sérstaklega heitt á meginlandinu og gestir tískuborgarinnar klæða sig eftir því. Eins og ég hef oft sagt þá er ekki síður skemmtilegt að fylgjast með götutískunni eins og tískupöllunum. Ég tók saman nokkrar myndir sem birtar hafa verið á ýmsum miðlum síðustu daga. Bonjour Paris Fashion Week .. mikið vildi ég að ég væri nær.
Sú gula hefur líka látið sjá sig hér í höfuðborginni og við fögnum því að sjálfsögðu með því að taka okkur þessi dress að ofan til fyrirmyndar. Bara það að fá að hafa sólbrillurnar á nefinu er eitthvað sem ég þakka fyrir.
Fólk veitir innblástur og sérstaklega á tískuvikum !
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg