fbpx

BONAPARTE

ALMENNTFÓLK

Bloggsíðan Bonaparte er áhugaverð ný hugmynd sem að greip áhuga minn. Síðan er ný af nálinni og sérstök að því leitinu til að þar birtast vikulegar færslur og aðeins ein færsla fær að standa í einu. Póstarnir eru skrifaðir af stofnendum en þær eru Gyða Lóa Ólafsdóttir, mannfræðinemi og Dóra Hrund Gísladóttir myndlistakona. Myndirnar eru skemmtilega teknar og sjarmerandi – allar af húsnæðum hjá ungu íslensku fólki

1 2 3 4 5 6 7 8 9 

Ég forvitnaðist meira.
_

Hvað er Bonaparte?
Síðan er á blogg-formi og á henni birtast vikulegar færslur þar sem við heimsækjum ungt og skemmtilegt fólk, ýmist á heimili þeirra eða vinnustofur. Fókusinn er á fólk undir 35 ára aldri, en við viljum reyna að hafa færslurnar sem fjölbreyttastar og leitum til lesenda síðunnar, vina og kunningja um ábendingar að áhugaverðum rýmum.
Hugmyndin kom upp yfir rauðvínsglasi snemma í vor. Okkur fannst vanta einhvers konar miðil sem sýndi hvernig ungt fólk í dag gerir fínt í kringum sig með sniðugum og ódýrum lausnum en ekki með flóknum framkvæmdum og rándýrum hönnunarhúsgögnum. Eins og með allar góðar hugmyndir þá á maður að framkvæma þær sjálfur en ekki bíða eftir að einhver annar geri það svo við ákváðum að prófa þetta bara. Nokkrar vikur fóru í undirbúning, leit að fyrstu heimsóknunum, hönnun síðunnar og fleira og svo settum við hana í loftið 26. apríl.

Hvernig hafa viðtökurnar verið?
Það hefur gengið mjög vel og allir sem við höfum heimsótt eru mjög ánægðir með útkomuna. Það er gaman að koma inn á heimili fólks í fyrsta sinn en ætli það sé ekki forvitnin sem veldur því að fólk hefur áhuga á þessu?

*

Stelpurnar eru alltaf í leit að nýjum og áhugaverðum heimilum og vinnustofum og því hvet ég þá sem að hafa áhuga að hafa samband og taka þátt í þessari skemmtilegu nýjung: HÉR

Klapp frá mér fyrir framtakasömu fólki !

xx,-EG-.

JÖR SKYRTUR

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Svart á Hvítu

    13. June 2013

    Frábær síða… finnst samt leiðinlegt að það sé ekki hægt að skoða eldri færslur líka, sérstaklega þegar maður er að uppgötva síðuna í fyrsta skipti:/

    • Bonaparte

      13. June 2013

      Það er reyndar hægt með því að smella á örina neðst á síðunni, en það sem er átt við hér er að það er einungis ein færsla á forsíðunni í einu.

    • Elísabet Gunn

      14. June 2013

      Þú hefur sannarlega fengið svar við pælingunni þinni :)

  2. Gyða Lóa

    13. June 2013

    Sæl Svana,
    Það er ör neðst í hverri færslu sem að færir þig aftur í fyrri færslu. Næst á dagskrá er svo að bæta við fídus sem mun gera það auðveldara og auðsjáanlegra að fara í fyrri færslur.

  3. íris Björk

    14. June 2013

    Frábær síða !
    Ég ætla að benda þér á að ég tók eftir því að það er hægt að lesa eldri blogg á síðnunni.
    Neðst í hverri bloggfærslu er lítið ör sem að bendir til hægri og þar geturu hoppað yfir á næstu blaðsíðu og lesið næsta blogg.
    Íris Björk

  4. Takk fyrir að deila þessari síðu, hún er glæisleg :) Æðislegt að skoða íslensk innlit, fannst það einmitt vanta :)