Það verður seint sagt að það hafi verið auðvelt að velja þessa einu heppnu sem mun hljóta þessa gullfallegu YSL tösku.
Það var gríðarlega góð þátttaka í þessum skemmtilega Instagram leik sem Trendnet hélt með Elnett á Íslandi. Ef leikurinn fór framhjá einhverjum þá snérist hann um að sýna það sem er ómissandi í handtöskunni og merkja myndina með #trendnet og #elnett. Takk allir sem tóku þátt.
Nú er komið að því að tilkynna vinningshafann sem hlýtur YSL Monogramme Envelope handtösku (að verðmæti 130.000 kr.) ásamt gjafapakka frá L’Oreal.
Eftir fundarhöld bloggara Trendnets komumst við að nokkuð einróma niðurstöðu.
Innilega til hamingju Rósa Þórunn Hannesdóttir (@rosathoha) !!!
Rósa sýndi okkur sýnar nauðsynjar í veskinu á fallegan og fágaðan hátt. Mér sýnist líka á öllu að henni vanti einmitt veski undir þessa ómissandi hluti.
Við þökkum fyrir frábæra þátttöku og sem sárabót þá gefum við þrjá aukavinning til viðbótar.
AUKAVINNING HLJÓTA …
@martakristinjons
@eddathorgeirs
Þær þrjár heppnu hljóta gjafapakka frá L’Oreal á Íslandi. Engan smá gjafapakka, en hann inniheldur eftirfarandi: Elnett Volume Excess hárlakk og Elnett Argan Oil hárlakk, Million Lashes maskara, tvo fallega Color Riche varaliti, þrjú Color Riche L’Huile naglalökk og Color Riche Le Palette Nude augnskuggapallettu í litnum Nude.
Trendnet óskar öllum vinningshöfum innilega til hamingju og þakkar Elnett fyrir skemmtilegt Instagram samstarf. Vinsamlegast sendið póst á trendnet@trendnet.is fyrir frekari upplýsingar.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg