fbpx

AFMÆLISGJÖF: HÁR INNBLÁSTUR

INSPIRATION

Ég fæ innblástur frá þessum fínu hárskvísum í kvöld.
– Pörfekt.

1a76a613b9951836531052b1bc0b8076 4c6ae039925f3d14a70ac1b9d6d8f182 7bab525b2cd1dffe1f43b22b5871ea3b 8179889f516d92b534b1c8f2aa41e5cb 8ed4c1cb80a2ca476766937e82b61dbf 998532809b33fdaa7f6c09f7fa2d7dc1 tumblr_mblxl1Ghav1qb3tg7o1_1280
Annars er ég með beiðni til ykkar sem að snýr líka að hári –

Ég á dálítið fínt dót í pokahorninu fyrir einn heppinn lesenda.
1 stk SP Luxeoil pakka – Sjampó, næringu og spreyolíu úr nýrri línu frá WELLA.

Ég hef sjálf verið að nota Wella olíuna í næstum því ár núna svo það gleður mig að gefa út slíkt eintak. Sjampóið og næringin eru ekki ennþá komin í sölu á hárgreiðslustofum á Íslandi svo sá sem að hreppir gjöfina fær í hendurnar fyrstu stykkin – ekki amalegt það!

Ég get ómögulega valið úllen dúllen doff hver á að fá gjöfina, svo kæru lesendur, merkið fyrir mig #trendnet á Instagram á viðeigandi hármóment ef að þið eigið slík til þar. Mega vel vera gamlar myndir og ég skoða að sjálfsögðu þær sem að nú þegar eru merktar. Tíminn verður ekki langur því ég vel í hádeginu á morgun þegar að við reynum að klára þessa fínu afmælishelgi.

Það er svo gaman að gleðja. Sjáumst klukkan 12.00 á morgun í gjafastuði!

xx,-EG-.

CPH SS14

Skrifa Innlegg