UPPFÆRT:
Einhvertíman ætla ég að hafa leik þar sem allir fá gjöf! Það er alltof erfitt að velja bara einn og þá sérstaklega þegar þátttakan er jafn góð og hér að neðan. Við Andrea erum auðvitað í skýjunum og þökkum kærlega fyrir að þessu sinni. Til að það sama gangi yfir alla þá nýtti ég mér vefsíðuna random.org til að finna vinningshafa dagsins. Upp kom talan 121 og ég dúllaði mér við að telja niður.
Anna Margrét Steingrímsdóttir er sú heppna að þessu sinni og fær tignarlega gráa slá í tilefni afmælisins.
“Aww vá mér finnst allar vörurnar æðislegar en myndi ég vinna myndi ég velja mér gráu slánna”
Vinsamlegast hafðu samband á eg@trendnet.is fyrir frekari upplýsingar.
_
Góða kvöldið og gleðileg jólin! Miðað við gjafmildi AndreU á afmælum verslunarinnar mætti segja að jólin kæmu snemma í ár. Það er orðin árleg hefð hjá mér að gefa fatnað frá íslenska hönnuðinum á þessum tíma. Í fyrra gaf ég glitrandi samfesting sem þá var nýr í mínum skáp. Í ár gef ég meira frelsi til lesenda og verð með þrjár ólíkar gjafir í boði. Hver af þeim hentar þér best?
Að bera slá sem yfirhöfn er eitt af tignarlegri trendum haustsins.Þessi glæsilega gráa hefur verið í uppáhaldi hjá mér og ég er viss um að hún fari okkur flestum.
Það eru ekki bara herrarnir sem klæðast rúllukraga í haust. AndreA sjálf seldi mér þennan fyrir nokkru þegar hún klæddist honum á forsíðu Nýs Lífs, glæsileg að vanda.
Dream Catcher hálsfestin er minimalísk og falleg og fæst í tveimur litum.
Þið afsakið naflann út í loftið … það er örugglega kominn tími á að ég segi ykkur almennilega frá líkamlegu ástandi mínu. Það fer ekki á milli mála að ég er ekki einsömul í mínum eigin líkama þessa dagana. Kem að því mjög fljótlega.
Slá: AndreA
Rúllukragabolur: AndreA
Hálsmen: AndreA
Buxur: Gina Tricot
Skór: Won Hundred
Það sem þið þurfið að gera til að eiga kost á að fá afmælisgjöf frá Andreu Boutique.
1. Skrifa komment á þessa færslu með þinni ósk um verðlaun (slá, rúllukragi, hálsfesti)
2. Smelltu á Facebook “Deila” hnappinn hér niðri til hægri.
Líkar ekki öllum við AndreA og Elisabetgunnars á Facebook?
Ég dreg út vinningshafa í lok vikunnar (30.10.15)
Til hamingju með afmælið elsku AndreA!
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg