fbpx

MAMMA & LITLI BRÓ Í HEIMSÓKN.

Þrátt fyrir að hafa misst af Trendnet gleði föstudagsins. Þá fékk ég í staðinn elsku mömmu & Arnar litla bróðir í heimsókn og hafa okkar stundir verið ekkert nema dásamlegar! Endalaust mikið af hlátri og gleði.

Búðarráp var tekið með trompi og elsku mamma sem er vön að hugsa fyrst um alla þá sem eru henni kærir, sá ég til þess að hún mundi í þetta skipti fókusera mest á sjálfa sig. Eina sem hún þurfti að gera var að bíða í mátunarklefanum og drengurinn hennar hljóp um búðina og fann handa henni endalaust af fínum fötum! Góður árangur þar!

Litli bróðir er líka að fara “amok” í kaupum!

Sem er ótrúlega skemmtilegt :) Það er ekkert betra en að fá þau í heimsókn, hér mættu þau alveg búa.

mammahome

Auðvitað var keyptur íslenskur fáni í tilefni komu mömmu & litla bró.

arnarhelgi

Bræðurnir sem geta auðvitað aldrei verið eðlilegir.

mammakasper

.. og mamma og tengdarsonurinn úti að borða.

Oh, þið SKILJIÐ ekki hvað lífið er gott akkúrat núna.

REYKJAVIK 15 - 21 OKTÓBER.

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Lilja Kristjáns

    22. September 2013

    Þið bræður eruð ekkert eðlilega myndarlegir! <3