fbpx

Instagram – uppáhalds.

Ég er að fylgja mikið af skemmtilegu fólki á instagram. Fólk sem hefur einstaklega heillandi auga með aðeins símanum sínum, segja sögur, segja frá, eða í rauninni ná að vera einstaklega listræn inná þessu einfalda appi.

Ég ákvað að deila með ykkur þeim sem yfirleitt eiga algjörlega skilið like-a á myndirnar sínar, þar sem þær heilla einstaklega mikið.

i

Pattra okkar er einstaklega skemmtilegur instagrammari, leggur mikið uppi fallegar og heillandi myndir.

ii

Guðný Lára vinkona er með heimskulega flott auga og það sést vel á myndunum hennar á instagram.

iii

Þegar ég skoða instagramið hans Tobias Sørensen verð ég lúmskt bitur, en þetta er algjörlega top 10.

iiii

Ampersand drottningarnar eru fáranlega skemmtilegar! Alltaf að gera eitthvað fáranlega skemmtilegt.

iiiii

Viktor á einhvernveginn endalaust af fötum, hann postar skemmtilegum myndum – alltaf – skrautleg og flott outfit!

iiiiii

Ég mundi segja að Hilma sé einn af mestu fagurkerum sem ég þekki. Ótrúlega gaman að fylgjast með lífinu hennar í Århus í Danmörku.

iiiiiii

Bast magazine gefur skemmtilegt innsýn inní danska tískuheiminn og fallegar myndir með íslensku ívafi! I love it.

iiiiiiiiii

Já, ég er alltaf að reyna motivera mig – þessi síða hjálpar!

iiiiiiiiiiii

Svavar James er ótrúlega skemmtilegur instagrammari, listanemi í Parsons með skemmtilegt auga og flottan stíl.

iiiiiiiiiiiiiiiii

Silja Magg er top 3 – must like. Ég elska elska stílinn & myndirnar hennar.

LLLLIKE AWAAAAYYY!

MORGUNMATUR - NÝTT ÆÐI!

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Pattra's

    29. August 2013

    Oh my -En dásamlega skemmtilegt að tilheyra þessum flotta hóp!
    Vona að ég fái að halda instagramminu mínu að þessu sinni ;)

    Þú ert snilld á insta!

  2. Viktor

    29. August 2013

    Thad er lika skemmtilegt ad fylgjast med ther myndarlegur!! Sakn a thig :*