Eru margir á leiðinni út á land yfir verslunarmannahelgina? Ég tók út fatnað úr íslenskum verslunum.
– ,,Frá toppi til táar” –
Triwa sólgleraugu hafa verið lengi á óskalistanum mínun. Þessi yrðu ansi fín útá landi en svo aftur þegar að heim er haldið. Svört og klassísk. FRÁ: Kastaníu
66°N regnkápa. Kápa sem að hægt er að nota meira eftir Verslunarmannahelgina.
Passið ykkur að fjárfesta í eign en ekki kaupa einhverja vitleysu sem að þið notið aðeins þessa helgina. FRÁ: 66°N
Tjörn peysa. Drauma .. FRÁ: FarmersMarket.
Finnska merkið Samuji er gersemi seld í Mýrinni. Röndóttur bolur passar við hvaða dress sem er.
2ndOne gallabuxur eru í ótrúlega góðu sniði sem að passar vel undir stígvélin. FRÁ: Gallerí17
Hunter stígvél eru framtíðareign. Tilvalin fyrir helgar eins og þessar en líka fyrir rölt á Laugaveginn á rigningardögum. FRÁ: Evunni og Geysi
Klæðið ykkur vel og góða skemmtun !
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg