Ég er kominn með miðana heim og ég er svo svo svo spenntur.
Fjölskyldan er númer 1, vinirnir nr 2, LungA númer 3.
LungA fyrir mér er eins og jólin. Kemur á hverju ári og er ekkert nema fullkomin hátíð! Hún hefur aldrei brugðist mér og mun ekki gera það þetta árið.
” Árið 2000 leit listahátíð LungA dagsins ljós í fyrsta sinn. Um er að ræða listahátíð þar sem sköpun, listum og menningu er fagnað með námskeiðum, fyrirlestrum og öðrum viðburðum og lýkur með uppskeruhelgi: sýningum og tónleikum.
Hátíðin er frábær blanda af listum, sköpun, tjáningu og stórbrotinni náttúru. Hún hefur getið sér gott orðspor, bæði á Ísland og út fyrir landsteinana fyrir frábært andrúmsloft, námskeið af miklum gæðum og með mikilli virkni þátttakenda. Ennfremur færir hátíðin gleði, sjálfsþekkingu, elskendur, nýja vini og góðar minningar fyrir þá sem sækja hátíðina heim. ”
ÉG HLAKKA SVO TIL – korter í geðveiki hérna úr spenningi. Ohhhh elsku fallegi Seyðisfjörður.
Er einhver hérna sem ætlar?
x
Skrifa Innlegg