Já, þið lásuð rétt! TRYLLAST! Ég er búinn að skoða þessar myndir í allan dag. Ég er gjörsamlega dáleiddur.
Allt við myndirnar þykir mér fullkomið, hugmyndavinnan, útfærslan, lýsingin, ég elska allt.
Þó má við engu öðru búast þegar fólk og listamenn eins og Saga Sig, Hrafnhildur Hólmgeirs, Fríða María & Steinunn Ósk koma saman þær fengu einnig með sér til liðs hina fögru Júlíönnu Ósk sem sá um framleiðslu.
Hver og ein af þeim algjörir listamenn og útkoman sýnir það svo vel og gott meira en það.
Myndirnar voru teknar fyrir merkið JÖR sem hönnuðurinn Guðmundur Jörundsson á og hannar fyrir.
Ég hlakka mikið til að heimsækja búðinar loksins í Íslands heimsókn, enda búinn að vera fylgjast grant með honum.
GJÖRIÐI SVO VEL KÆRU LESENDUR, NJÓTIÐI VEL!! Fallegt fallegt fullkomið!
Myndir: Saga Sig
Stílistering: Hrafnhildur Hólmgeirs
Make-up: Fríða María
Hár: Steinunn Ósk
Framleiðsla: Júlíanna Ósk Hafberg
Skrifa Innlegg