Ég er alveg óhræddur að segja það að lífið leikur við mig þessa dagana. Það koma stundum tímar sem mig langar öskra af öllum krafti hversu glaður ég er.
Ég er í einstaklega góðri vinnu, á góða að, yndislegan kærasta, & loksins hefur lífið mitt fengið eitthvað sem heitir fótfesta.
Ég er ekki á ferðinni meira og þessi ragetta sem hefur verið pikkföst í rassgatinu á mér og þeyta mér útum allar tryssur er loksins farin að missa blossana sína og farin að róa sig.
Í fyrsta skipti í lífi minu er ég vaknaður kl 8:00, einbeittur, skipulagður og farinn að hætta að vera upptekinn við að vera upptekinn.
Besta breytingin er sú að ég er farinn að koma mér fullri einbeitni í líkamsrækt með góðum ræktarvin.
3 KILO TO GO!! 80 kg, koma svo!
Fagri, hvetjandi og duglegi líkamsræktarfélaginn minn, Athena Ragna.
Æði gott æði.
Skrifa Innlegg