fbpx

TRENDNET Á TÍSKUDÖGUM

Eins og flest ykkar hafið tekið eftir hér á síðunni þá tekur Trendnet þátt í Tískudögum Smáralindar um helgina.
Tískudagarnir hefjast í dag og standa alla helgina.

Í tilefni þess þá svörum við Trendnetarar tískutengdum spurningum af öllum gerðum í tilbúnum dálk á síðunni. Hvort sem að það snúi að klæðnaði, förðun, hári eða heimili þá ekki hika við að senda inn línu.
Takk þið sem að hafið nú þegar sent inn spurningu en öllum verður svarað eins fljótt og auðið er.

Auk tískuráðgjafar á heimasíðunni verða þær Theodóra, Erna Hrund og Þórhildur Þorkels á staðnum milli klukkan 15-17 á laugardeginum, staðsettar fyrir framan verslunina Epli, strax að loknum tónleikum hjá sjálfum Mugison sem að byrjar klukkan 14. Á staðnum sína þær sumar hár, makeup og útvaldar flíkur sem að nú eru í sölu í Smáralind. Hjálpa viðskiptavinum þannig að gera innkaupin sem þæginlegust ásamt því að spjalla við gesti og gangandi.

Instagram verður á sínum stað þar sem að í þetta skiptið hvetjum við almenning til þess að merkja #TrendSmaralind á viðeigandi trendmóment.
Draumaflíkin, trendmóment í Smáralind eða aðrar góðar hugmyndir geta átt von á veglegum vinningum.
20.000 króna gjafabréf í Levi’s, 20.000 króna gjafabréf í Gallerí Sautján og 20.000 króna gjafabréf í Corner.
Aðalvinningurinn sem að dreginn verður út á mánudagskvöld er síðan ekki af verri endanum – 40.000 króna gjafakort í Smáralind ásamt Nike Free skóm að eigin vali frá Kaupfélaginu/Skór.is !! Það er því til mikils að vinna. Vinningar verða dregnir út laugardag, sunnudag og mánudag.

Hafið gaman í Smáralindinni um helgina. Ég fylgist með úr fjarlægð.

Góða skemmtun –

xx,-EG-.

LANGAR

Skrifa Innlegg