Að þessi leðurkápa sé að koma í sölu í litum, er mögulega besta hugmynd sumarsins hjá Andreu vinkonu minni í Hafnarfirði. Kápan mun koma í mjög takmörkuðu upplagi en ó hvað ég samgleðst þeim sem ná eintaki. Mér leið eins og stjörnu þegar ég fékk þessa að láni eina kvöldstund í Kaupmannahöfn –
Svört fæst HÉR og litir eru væntanlegir
Ég fékk líka mikið af spurningum um ljósgrænan blazer sem ég alveg elska og á eftir að nota mikið í sumar – grænt er greinilega gott og þennan keypti ég nýlega í Mango –
Blazer fæst: HÉR
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg