fbpx

Brúðkaup í dag!

Í dag er ég að fara í brúðkaup og finnst skemmtileg tilhugsun að fá að fara úr stórum, þykkum, hangandi flíkum með tæt hár eða derhúfu og þykkan trefil og klæða mig í fín og stílhrein föt.

Já, ég veit ekki afhverju ég er eitthvað svaka spenntur fyrir þessu! Að fylgjast með brúðkaupi þykir mér einstaklega fallegt. Ég hef verið heppinn að vera ráðinn sem ljósmyndari í nokkur og voru þau öll algjörlega dásamleg. Hef lítinn áhuga á að mynda einhversskonar eventa eða veislur. En brúðkaup er stór undantekning og finnst mér fáranlega skemmtilegt að reyna fanga þau einlægu augnablik sem eru í brúðkaupum.

wed wedshoes

Alexander McQueen dúnúlpa.

Skrifa Innlegg