fbpx

SUIT leður parka – to die.

Fyrir akkúrat ári síðan labbaði ég inní GK Reykjavík og fann þar svo fallegan jakka, síður, armygrænn, með massívum lambakraga. Ég vissi að þarna væri ég er kominn með jólagjöfina og hringdi strax í karl föður minn og samdi um ýmsar leiðir til að versla þennan jakka ekki seinna en næsta dag.

Eitthvað svipað gerðist hér núna fyrir tveimur dögum síðan, ég gekk inní GK til að skoða mig um og þar hékk  hún. Leður parka úlpa frá SUIT. Öskrandi nafnið mitt svo gott sem skipandi mér að fjárfesta í henni. Ég er allavega að reyna vinna í því!

suit suit2 suit3 suit4

Æðri völd hjálpi mér! Er ekki bara einhver þarna úti sem vill gefa mér svona í jólagjöf? Hlýtur að vera!

Einstaklega falleg, slurp. Þrái & dái.

Kær kveðja

Helgi

9 LÍF - í ATMO.

Skrifa Innlegg