Ég hef mjög gaman að fylgjast með vel klæddum kauðum á Instagram og verð algjörlega fyrir innblæstri á þeim miðli. Ég hef persónulega mjög gaman af því hvað þetta er að aukast hjá íslenskum strákum, þar sem sýnt eru outfit og svoleiðis. Svo ég gramsaði í nokkrum vel dressuðum og ætla að deila með ykkur –
Teitur Páll Reynisson – @teiprey
Kannski margir lesendur þekkja hann en hann er heittelskaði maðurinn hennar Fanneyjar Ingvars okkar. Maðurinn er svo vel dressaður og ég hef komið heim til þeirra og skósafnið hans og fataskápurinn (sorry Fanney og Teitur ég kíkti smá) er svo tiptop geggjaður.
Björgvin Koustav – @bjorgvinkoustav
Þessi finnst mér geggjaður, ekki bara er hann vel klæddur heldur klár og einlægur. Hann er mjög ungur en í fáranlega flottri stöðu hjá Adidas í London. Hann heldur einnig út bloggsíðunni bjorgvinkoustav.com –
Logi Thorvaldsson – @prettylogi
Einn flottasti gaur landins, punktur. Ég dýrka allt við hann og stíllinn hans er algjörlega einstakur, over the top og max insperandi. Instagrammið hans er algjör visual perla.
Pétur Kiernan – @peturkiernan
Sindri Jensson – @sindrijensson
Sem þarf varla að kynna, en mastermindið bakvið Húrra Reykjavík –
Tómas Urbancic – @tomasurbancic
Af mörgum mögulegum mundi ég segja að Tómas sé best dressaði Íslenski karlmaðurinn held ég. Hann vinnur í Illum með stærstu merkjunum. Ég hef séð hann á götunum hér í Kaupmannahöfn og jú í Illum og mundi segja að það er eitthvað svona star quality við hann. Fáranlega flottur.
Guðmundur Ragnarsson – @mundurr
Hér er annar Trendnet husband, Guðmundur hennar Sigríðar. Ég hef followað hann svo lengi og hann er einnig alltaf gjörsamlega on point og finnst svo gaman að fylgjast með honum.
Arnar Freyr Ársælsson – @arnar.freyr
Markaðsgúrúinn á bakvið Nocco, Barebells, Froosh og VitaminWell svo eitthvað sé nefnt. Einstaklega vel klæddur og alltaf on point.
Egill Ásbjarnarson – @egillasbjarnar
Maðurinn á bakvið Suit Up Reykjavík, enough said þar.
Logi Pedro – @logipedro
Eigið góðan mánudag!
Skrifa Innlegg