Ég heyrði í Evu vinkonu minni í gær varðandi námsskeið sem hún og Anna Sóley eru að halda. Þær eru svona týpur sem mig langar að synda í orkunni þeirra og þær kenna mér alltaf eitthvað nýtt og gefandi þegar ég er í kringum þær. Ég mæti í yoga til Evu í hvert skipti sem ég er í bænum og það er svo ofur gott.
Mér fannst þetta svo sniðugt námsskeið, en þær báðar eru náttúru-gúrúar og viskubrunnar sem ég lít einstaklega mikið upp til, og hefði mikið verið til í að fara í námsskeið sem og það sem þær eru með í boði. Námsskeiðið er að sjálfssögðu fyrir bæði kynin, svo engar áhyggjur strákar.
Allavega, eitt leiddi að öðru og við vorum sammála um að okkur langaði að bjóða lesanda Trendnet á öll þrjú námsskeiðin. Sem eru á morgun, 30 nóvember, 7 desember og 14 desember.
Þar fara þær yfir allskonar DIY. Fullt af uppskriftum, heilnæmar lausnir við líkamlegri heilsu og heimilistengt. Það er lang sniðugast að klikka HÉR – og lesa allt sem er í boði á þessu námsskeiði. og hér fyrir Facebook eventinn.
Námsskeiðið er staðsett á Gló í Fákafeni OOOG ef þið viljið mæta á þetta námsskeið, þá þurfiði bara að skilja eftir nafn og símanúmer í kommentum og BAM!
Þið eigið þá von á símtali strax á morgun og passið að taka þessar dagsetningar og tíma frá.
Njótið vel, væri svo til í að mæta líka.
Knús, njótið vel og namaste (því ég veit að Eva mun lesa þetta)
Skrifa Innlegg