Ég biiilast (!) yfir nýrri herferð franska tískuhússins Balmain. Þrjár drottningar tíunda áratugarins sitja fyrir og slá ungu kynslóðinni algjörlega við að mínu mati.
Balmain minnir okkur á hver hin raunverulegu súper módel eru með SS2016 herferð sinni. Þetta eru 90’s drottingar tískupallanna – þær Cindy Crawford, Naomi Campell og Claudia Schiffer. Myndirnar eru í svarthvítu og voru fyrst birtar á Instagram reikningi tískuhússins (@balmainparis) í morgun.
Það vekur sérstakan áhuga minn að tískuhúsið kýs að birta þessar “rándýru” myndir á Instagram reikningi sínum. Þau eru með 3,4 milljónir fylgjenda og ná til mun fleiri með þessari leið en að birta þetta í tískutímariti eða á heimasíðu. Er þetta það sem koma skal?
Verslanir fara kannski að birta sína tískuþætti og lookbook á Trendnet instagramminu á næstunni frekar en að setja þau í tímarit – hver veit?
Ég elska þetta … það býr eitthvað svo mikill þokki og glæsileiki yfir fyrirsætunum sem hefur kannski verið vöntun á síðustu árin.
Meira: HÉR
//
I loooove (!) the new SS16 campaign that Balmain launched today on they’re Instagram account. The catwalk queens of the ’90s – Cindy Crawford, Naomi Campbell and Claudia Schiffer haven’t forgot anything.
More: HERE
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg