Góðan daginn desember! Ég veit að þið eruð líklega flest í jólagír í óveðrinu heima á Íslandi. Vonandi fenguð þið leyfi til að vinna að heiman í dag. Þetta er nefnilega svona dagur þar sem má dekra við sig með því að búa til notalega stemningu með kertaljósum, heitum drykkjum og réttri tónlist í eyrunum. Ég var svo heppin að fá rúmlega sólahring af fallega hvítu útsýni út um gluggann minn, heimasætunnar til mikillar hamingju. Snjórinn hélst þó ekki lengi því í dag hefur rignt eins og hellt sé úr fötu, mér til gremju. Ég lifi því svolítið í gegnum ykkar myndir þessa dagana.
Leið nóvember ekki eitthvað sérstaklega hratt? Mér finnst það ..
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg