Ú lalaaa … þetta er eitthvað fyrir mig!
DARK MOOD er nýtt íslenskt aukahluta merki sem brátt mun fást í GK Reykjavik. Ég rakst á nýjungina á Instagram-mynd rétt í þessu og ég er vægast sagt spennt. Ákvað því að deila fréttunum strax með ykkur.
Hönnuðurinn er Hildur Sumarliðadóttir en hún var einmitt vinningshafi í fatahönnunarkeppni Trendnet og Coke Light fyrir ári síðan. Greinilega með hlutina á hreinu!
Ég talaði um það að við myndum sjá belti notað í öðrum tilgangi í sumar. Þetta er virkilega flott dæmi um slíkt.
Komið á minn óskalista. Belti sem myndi setja punktinn yfir i-ið við rétt tækifæri.
Áfram Ísland!
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg