Þarf maður að fara að huga að helgardressinu? Leið vikan ekki óvenju hratt í þetta skiptið?! Það finnst mér …
Er laugardagslúkkið bert bak? EYLAND vill meina það. Ég mátaði þennan í GK á dögunum og hann er ennþá (!) tekinn frá fyrir mig.
On eða Off? Það þarf víst að fara að láta hann fram í búð aftur. Úps.
Hátískan segir bert bak í sumar miðað við myndirnar hér að neðan –
Balmain SS15
Diane von Furstenberg SS15
Marni SS15
Ralph Lauren SS15
Emilio Pucci SS15
Helen Lawrence SS15
Chloé SS15
Það er örugglega galdur að kunna að klæðast flíkum sem bera bakið allt árið um kring og það hræðir eflaust marga að fjárfesta í þannig flík þegar vetur konungur er hvað mestur. Það er vel hægt að klæðast blússum innanundir sem gera gatinu greiða þegar kallt er úti og sama flík nýtur sín svo allt öðurvísi á blíðviðrisdögum. Gæti það talist kjarakaup? … Nú er ég að reyna að selja mér hugmyndina. Það gæti verið að virka.
Langar ..
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg