Ég féll fyrir kápu fyrr í haust og deildi því með ykkur hér á blogginu. Ég gat ekki staðist freistinguna og hún varð okkar nokkru seinna. Sá póstur hefur þó kannski farið fram hjá einhverjum því margar mæður hafa forvitnast um flíkina eftir að ég birti mynd á Instagram af dóttir minni í vikunni.
Kápan er ein af fallegri flíkum sem Alban hefur átt og henni líður sjálfri eins og sannri prinsessu í þau skipti sem hún hefur klæðst henni. Ég vil meina að þetta sé jólakápa(n) í ár – í það minnsta hér á bæ. Gerði ég þá nokkuð vitlaust með að velja hana í ljósa litnum? Hún kemur líka í rauðu.
Frá: íslensku MÍNÍMÍ
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg