Fatalína Kate Moss fyrir Topshop kom í verslanir í gær, þar á meðal á Íslandi. Af því tilefni hélt fyrirsætan og hönnuðurinn einkasamkvæmi í London í fyrrakvöld sem skemmtilegt var að fylgjast með á Instagram.
Meðal gesta voru Sir Philip Green, Naomi Campbell, Cara Delevigne, Suki Waterhouse og Sienna Miller ásamt fleiri þekktum nöfnum. Þær fyrrnefndu sjáið þið pósa saman hér fyrir neðan í fatnaði úr línunni. Er það ekki rétt hjá mér að klæðin njóta sín betur þegar við sjáum þau á módelum? Mér finnst það …
Fleiri flíkur úr línunni sjáið þið: HÉR
@caradelvingne
@topshop
What a line up ….. Frú Moss er heppin að eiga góða(og rétta) vini.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg