Hæ og hó! Hér er ég, inni í Zöru með mikinn valkvíða. Staðan var sú að ég ætlaði að kíkja á lokaútsölur (eins og bókstaflega allar aðrar konur í Köln þennan föstudaginn!) en svo dróst ég lengra inní verslunina þar sem komnar eru fyrstu haustvörur. Hér á ég erfiðara með mig …
Sjáið þetta fína leðurpils!
Ég held að ég hafi fundið haustflíkina sem við þurfum allar að fjárfesta í. Vandamálið er samt að hún kemur í svörtu (sem er alltaf safe) og tveimur öðrum fallegum jarðlitum. Þessum sinnepsgula sem ég er svo hrifin af og fallega bleikum lit sem þið sjáið hér að neðan.
Sniðið er rosalega gott og svona flík má svo sannarlega nota á marga vegu. Við t-shirt og strigaskó á mánudegi en við blússu og hæla um helgar. Ég veit að þið margar eruð að leita að einmitt þessu. Fylgist með því hvort það komi heim næstu daga – það hlýtur að vera!
Nú er ég farin inn í mátunarklefa með þessi þrjú við hendina. Svo verður það bara úllen dúllen doff hvaða litur verður fyrir valinu. Hvern mynduð þið taka?
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg