fbpx

WINNER

ALMENNT

Í leiknum okkar góða voru margar myndir sem að náðu til mín. Ég valdi nokkrar fyrr í dag og hef flett þeim fram og tilbaka. Þið voruð svo dugleg! Meira svona. Þið vitið af því að instagram boxið á forsíðunni er komið til að vera sem að þýðir að þið getið alltaf tekið þátt á Trendnetinu með okkur – gaman ! Reglulega verða verðlaun og því um að gera að halda áfram að búa til innblástur til að deila með hvort öðru, og mér.

Þetta var ekki auðvelt verk.
EN ..
Eldri konan á myndinni hér fyrir neðan bræddi mig niður í gólf í krúttlegheitum. Mér finnst hún algjör pæja.
Hún var því yfirburðar að mínu mati – í þetta sinn.
Þið vitið hvað ég er hrifin af fólki.


Eigandinn Klara Sól, fær því veglega gjafakörfu frá Burts Bees.

Hún inniheldur m.a.:
Radiance shimmer ,
varanæringu með lit,
Burts Bees body lotion,
Cuticle cream sem að er salvi fyrir naglaböndin,
varasalvi í dós: með kókoshnetu sólblóma og piparmyntuolíu

Njóttu vel !! X

//EGunnars.

ps. hafðu samband á trendnet@trendnet.is fyrir nánari upplýsingar.

MOSCHINO

Skrifa Innlegg