Í upphafi átti þessi póstur að heita WeekDay Útsala, en svo breyttist það aðeins.
Ástæðan er sú að í gær skoðaði ég útsölu vefsíðunnar og varð eiginlega bara pirruð því það voru nokkrar flíkur sem að mig langaði í (en hefði ekki getað eignast).
Í dag þegar að ég ætlaði svo að finna vörurnar á vefsíðunni og setja í póstinn fyrir þá sem að geta nálgast þær (búsettar í WeekDay löndum) þá komst ég ekki inn á síðuna.
Og þetta var ástæðan !!
–
JEESSS ! Mikið er ég glöð.
Sænska verslunin ætlar nú loksins að verða að ósk minni.
Þeir opna netverslun (!) Þó fyrr hefði verið.
Hún er opnuð: HÉR
Hverjir fleiri eru glaðir?
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg