fbpx

VERTU VELKOMIN/N

ÞÉR ER BOÐIÐ!

11077874_10153085564851253_819621645_n

Samstarfsverkefni mitt við NTC fer í sölu í verslunum Gallerí 17 í Kringlu í hádeginu á morgun (20.mars). Það er bara svolítið stór stund finnst mér. Mér þætti vænt um að þið, elskulegu lesendur mynduð vilja gleðjast með mér.

Fatalínan er innblástin af allskonar fólki og auðvitað mínum afslappaða persónulega stíl.

Hún samanstendur af 11 ólíkum flíkum sem allar eiga það sameiginlegt að vera klassískar – það sem mér finnst vera musthave í hvern fataskáp.
Basic er best (!) eins og ég hef svo oft sagt.

Að lokum vil ég biðja ykkur um að fjárfesta í einföldum taupoka sem við létum prenta fyrir þetta samstarf. Pokinn kostar 1.290 kr. og rennur sá peningur beint til Krabbameinsfélags Íslands. Í fyrstu 100 pokunum verður meira að segja glaðningur frá Joe & the Juice, það gerist varla betra – maður styrkir gott málefni og fær glaðning í leiðinni.

Fylgist síðan með á blogginu á morgun þegar ég birti Lookbook fyrir Moss by Elisabet Gunnars sem Saga Sig tók og ég skellti mér í fyrirsætuhlutverkið.

Þangað til næst.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

LITLA LEYNIVERKEFNIÐ

Skrifa Innlegg