fbpx

TOPP5 VERSLANIR HERRANNA

KKSHOP

Out magazine tók saman 3 frábærara verslanir fyrir herrana í Reykjavík. Að mínu mati skemmtileg blanda af verslunum, en allar eru þær vel heppnaðar og nauðsynlegar fyrir herrana okkar, hver með sinn stíl.

Nýjasta herraverslunin, Húrra Reykjavík, var efst á blaði. Ótrúlega vel heppnuð og falleg verslun á Hverfisgötunni sem býður uppá flott úrval af hversdags fatnaði fyrir herrana. Dönsku merkin Libertine Libertine og Norse Project í bland við alþjóðleg merki eins og Carhartt. Gott úrval af skóm og aukahlutum, sem dæmi má nefna vinsælu úrin frá Komono. Vonandi hleypir verslunin lífi í Hverfisgötuna og við munum sjá fleiri verslanir færa sig þangað á næstunni.

HurraReykjavik02

Næst á eftir kom Herrafataverzlun Kormáks og Skjaldar. Annar stíll og gullnáma fyrir hefðarmennina sem borgin hefur að geyma. Þá eru þeir með vinsæl merki eins og Filson og Barbour. Ef leitað er eftir aukahlutum eins og höttum, ermahnöppum eða slaufum þá er þetta rétta verslunin.

900x900px-ll-432d13d0_k-s2012_img_7500_500
Sú þriðja í röðinni var síðan Farmers Market, sem bjóða uppá falleg föt innblásin af íslenskri sögu. Klassísk föt þar sem íslenska ullin er í aðal hlutverki. Flíkur sem lifa lengi (lengur).

FarmersMarket_K9A2805_wide_01_small_913x495

_

Skemmtilegur listi sem sýnir að við höfum ágætis fjölbreytni fyrir herrana okkar. Ég ákvað að bæta tveimur verslunum við listann sem myndu rata á minn topp5 lista í 101 Reykjavik.

Jör býður okkur uppá sína frábæru hönnun á Laugarveginum og hefur undanfarið verið að bæta inn áhugaverðum merkjum í bland við eigin hönnun. Síðustu tvö ár hefur hönnunin stolið senunni á Reykjavik Fashion Festival, ég vona svo sannarlega að þeirra ævintýri muni ganga upp og þeir komi sér fljótlega inná erlenda markaði.

1011208_207441206075304_819427960_n

Suit Reykjavik býður uppá flotta götutísku frá Danmörku á mjög viðráðanlegu verði. Verslun þeirra á Skólavörðustíg er kannski sú flottasta og hönnuð af snillingunum í HAF hönnunarteyminu.

suit-web-08

Eruð þið með fleiri verslanir fyrir herrana sem ættu að vera á listanum?

Áfram Íslensk verslun!

xx,-EG-.

SUNNUDAGS INNBLÁSTUR

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

9 Skilaboð

  1. Irena

    2. November 2014

    Þú ert að gleyma Noland!

    • Elísabet Gunnars

      3. November 2014

      Ah. Ég tengi Noland alltaf við Kringluna. Auðvitað eruði í miðbænum (!)

  2. Daníel

    3. November 2014

    Geysir!

    • Elísabet Gunnars

      3. November 2014

      Sammála .. Geysir á heima á þessum lista.

  3. Stjáni

    3. November 2014

    Geysir alveg klárlega. Þau eru að færa sig inn á nýjar víddir og taka inn fullt af nýjum merkjum sem eru mjög flott og vönduð. Þjónustan er líka til fyrirmyndar þar.

  4. Bjarki

    3. November 2014

    Kringlan er í Reykjavík Elísabet :)

    • Elísabet Gunnars

      3. November 2014

      Haha – ég veit það vel Bjarki! Tek Kringluna næst fyrir. Einbeitti mér að miðbænum í þetta skiptið.

  5. Davíð

    4. November 2014

    Þó það sé ekki hefðbundin verslun eru Suitup Reykjavík að gera mjög flotta hluti líka.

  6. nína

    4. November 2014

    sturla er flott líka