Mörg ykkar hafið eflaust tekið eftir hinni gullfallegu Penelope Cruz á forsíðu Trendnet. Ekki leiðinlegur félagsskapur þar! En hún er nýtt andlit Lindex eins og ég hef áður komið inná. Fyrsta línan af þremur, með leikkonuna fremsta í fylkingu, er partýlínan sem að nú þegar er komin í sölu.
Ég tók saman mínar uppáhalds vörur úr línunni vegna beiðni frá lesenda í gegnum Tískuráðgjöf á Trendnet.
Spurningin var svohljóðandi:
Hverjar eru þínar uppáhalds flíkur frá Penelopé Cruz línunni í Lindex? Hvernig myndir þú sjálf klæðast þeim?
6995,-
Hið fullkomna svarta sumarpils. Sniðið er niðurfyrir hné.
Ég myndi sjálf klæðast því við lága Converse og girða lausan T-shirt ofan í.
2995,-
Perlu armband í anda Chanel ss13. Passar við allt. Punkturinn yfir i-ið.
Bolur: 4995,-
Sé hann fyrir mér við leðurbuxur og hæla á meðan að veðrið er þannig, en við grófar gallastuttbuxur í sumar.
5995,-
Hvítar gallabuxur eru must have í sumar að mínu mati. Ekki skemmir fyrir lítil details eins og saumarnir á þessari týpu.
3995,-
Chanel innblásturinn er ekki bara í Lindex. Sviparðar festar fást í Zöru til dæmis en þar eru þær reyndar helmingi dýrari.
3995,-
Sumarkjóll við sandala.
_
Ég er svo hissa á verðinu !! Og því varð ég að hafa þau með.
Allir fá þá eitthvað fallegt …
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg