fbpx

RIP ROBIN WILLIAMS

FÓLKFRÉTTIR

robin-williams-cover-ftr

Það voru sorglegar fréttir sem ég (og við öll) vaknaði við í morgun þegar ég las um fráfall leikarans Robin Williams.

Mér fannast fréttirnar sérstaklega óþæginlegar fyrir þær sakir að í gærkvöldi “sat hann til borðs” með okkur fjölskyldunni yfir matnum á spænsku Tapas veitingahúsi í Köln. Gunnarsdóttir yngri fær gjarnan að taka með ferðaspilara þegar við fjölskyldan förum út að borða á kvöldin. í þetta skiptið valdi hún Mrs. Doubtfire með sér, en það þótti mér ótrúleg tilviljun, en við ræddum það einmitt að við værum meira en til í að fylgjast með myndinni með henni, enda æðisleg mynd.

10602741_10152332730287568_1216641259_n
Þetta er því miður eina myndin sem var tekin um kvöldið ….

 

KobalKobal

Mrs. Doubtfire er án efa minn uppáhalds karakter sem herra Williams lék, en ég gat horft aftur og aftur á myndina þegar ég var yngri. Það var einmitt ástæðan fyrir því að ég keypti myndina fyrir döttur mína og hefur hún ekki síður gaman af henni.
Frábær skemmtun og fallegur boðsskapur. Susanna vinkona mín sagði okkur yfir matnum að við ættum von á framhaldi fljótlega? Líklega missum við af því ef upptökur voru ekki byrjaðar.

R I P.

Robin-Williams-younger
xx,-EG-.

SUNNUDAGS INNBLÁSTUR: #TRENDKAFFI

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

2 Skilaboð

  1. Pattra S.

    12. August 2014

    Hrikalega sorglegt, horfðum einmitt á Hook áðan honum til heiðurs.
    Heilsan er svo sannarlega dýrmæt það er nokkuð ljóst!

  2. Elísabet Gunnars

    12. August 2014

    Orð að sönnu Pattra ….
    Svo sorglegt!!

    Alba náði ekki að klára myndina í gær svo við horfðum á síðustu mínúturnar áðan vitandi fréttirnar. Skrítið.