fbpx

PORTER

FASHIONFRÉTTIRMAGAZINE

g

 Nýtt tískutímarit, Porter, kom í fyrsta sinn út í síðustu viku. En hvenær er betri tími til að gefa út tísku heldur en einmitt á tískuviku New York borgar.

photo

Tímaritið er í eigu vefsíðunnar Net-a-Porter og í tilefni útgáfunnar fóru þeir óhefðbundna leið í markaðssetningu. Hægt var að hlaða inn “I am Porter” appi í símann sem setur þínar myndir í sama lúkk og tímaritið sjálft. Ef þú birtir myndina þannig á Instagram með merkingunni #iamporter þá áttir þú kost á að vinna 1.000.000 isk inneign hjá vefversluninni. (!)

photo 2 as
Ég nældi mér sjálf í eintak strax í byrjun vikunnar þar sem sjálf Gisele Bündchen tók á móti mér og eyddi með mér kaffistund.
Ofurfyrirsætan og fyrsti Porterinn geislaði á náttúrulegan máta á forsíðunni og ég velti þér fyrir mér hvort hún mögulega vakni svona gallalaus? Ég gæti trúað því …

Blaðið kom mér svo sannarlega á óvart því það býr yfir einhverskonar meiri fágun en ég er vön að fá út úr tískutímariti. Ótrúlega vel heppnað fyrsta blað og ég bíð spennt eftir því næsta sem er væntanlegt í apríl.

Mæli með …

xx,-EG-.

HELMUT LANG

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Gudrun Jona

    12. February 2014

    Sammála – kom mér a óvart, mjög gott blað!
    En í dýrari kantinum:/
    Kv a ykkur frá S-France :)

    • Elísabet Gunnars

      12. February 2014

      Já, góður punktur. Geðveikt dýrt! 10Evrur. Eins gott að eitthvað vit var í innihaldinu.
      Bestu kveðjur tilbaka :*