Ellen Degeneres var kynnir kvöldsins á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór í gærkvöldi. Það var létt yfir stemningunni eins og við er að búast af þessari skemmtilegu konu en hún dreifði pizza sneiðum á gesti sem og tók margar “selfie” og kvatti aðra til að gera slíkt hið sama.
Ellen safnaði saman hinum frægustu leikurum í salnum og náði þannig þeirri allra bestu “selfie” – Lupita Nyong’o, Meryl Streep, Channing Tatum, Julia Roberts, Kevin Spacey, Brad Pitt, Angelina Jolie og Bradley Cooper voru módel myndarinnar. Jared Leto var einnig með en klipptist út úr rammanum. Með myndinni ætlaði hún sér að slá út retweet metið á Twitter. Á minna en klukkutíma var henni retweetað 871.000 sinnum, en fyrir átti sjálfur Barack Obama metið með 780.000 retweet.
Sjáið myndina hér fyrir neðan. Algjörlega frábær.
Undir myndina skrifaði hún: If only Bradley’s arm was longer. Best photo ever.
Frábært atvik!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg