Þetta er auðvitað stórhættulegt … að byrja að fara yfir sýningar tískuvikunnar í New York. Það er ágætt að ekkert er komið í sölu nú þegar. Annars færum við á hausinn.
Desktopið er löngu orðið fullt af myndum, virkilega vel heppnað hjá þeim hönnuðum sem ég held uppá. En nokkrir eiga enn eftir að sýna þegar þetta er skrifað.
Mín uppáhalds lúkk frá fashion week eru þessi að neðan –
Alexander Wang
Jör inspired? Það var drungaleg stemning hjá Alexander Wang í ár. Kom mörgum á óvart – þar á meðal mér.
Meira: HÉR
Altuzarra
Joseph Altuzarra sýndi kvenleika með twisti. Samkvæmt þessu megum við enn sýna örlítið í undirfötin.
Meira: HÉR
Vera Wang sem er hvað þekktust fyrir guðdómlega brúðarkjólahönnun sýndi allt annað en “wedding” á pöllunum fyrir næsta vetur. Gröfum upp það sem við eigum til inní skáp. Less is more … Minipils og XL fisherman peysur og við erum góð.
Very very Veru næs !
Meira: HÉR
Victoria Beckham
Súper sexy en minimalisk fatalína hjá breska hönnuðinum fyrir næsta vetur.
Eins og ég hef áður tekið fram þá stal fremsta sætalína athygli minni: HÉR
Meira: HÉR
Derek Lam
Derek Lam var sá hönnuður sem hefur náð hvað sterkast til mín. Það er samasem merki á að vel hafi tekist til þegar erfitt er að velja á milli lúkka til að birta. Stílisering til fyrirmyndar á everyday klæðum sem kalla á mann. Ullardragtin er í uppáhaldi.
Meira: HÉR
DKNY
Donna Karan
New York að næturlagi? Ég fékk þá tilfinningu á meðan ég fletti í gegnum vel heppnaða línu Donna Karan. Army kápan er á óskalista.
Meira: HÉR
Wes Gordon
Flegið eða rúllukragi? Kvenlegt, elegant og fallegar yfirhafnir.
Meira: HÉR
Jason Wu
Glamúrös alla leið –
Beinar línur í kvenlegum sniðum. Feldurinn setur punktinn fyir i-ið.
Meira: HÉR
Opening Ceremony
Basic 90s fílingur sem við erum allar svo hrifnar af núna. Ég las einhverstaðar að Björk (okkar) Guðmundsdóttir hafi verið ein af innblæstrinum í gerð vetrarlínunnar. Vel gert!
Meira: HÉR
Rag and Bone
Rag and Bone lögðu layer ofan á layer í stíliseringu. Silki kjólar og skyrtur yfir cashmere eða leður buxur – allt undir XL yfirhöfnum. Eitthvað fyrir mig.
Meira: HÉR
Þær kunna sitt fag, smekklegu systurnar á bakvið The Row. Olsen systur sýndu power í þægilegum búning. Slippers og oversized í jaðarlitum sem við kunnum svo vel við á þessum tíma árs. Stílar sem ég vil helst fá að klæðast strax – virkilega hrifin, eins og oft áður.
Meira: HÉR
_
Ég eyddi tíma í að velja vel mitt uppáhalds til að deila með ykkur. Leyfið mér endilega að heyra skoðanir ykkar í kommenta gluggann hér að neðan. Hver er ykkar uppáhalds vetrarlína hingað til? Eitthvað sem kom ykkur á óvart? Ég er spennt að heyra aðrar hliðar á stóru tískuvikunni. Skellum okkur svo saman þangað næst þegar það er í boði!
Við leyfum þessum vetri að klárast en getum greinilega beðið spennt eftir þeim næsta í klæðum hátískuhönnuðana.
Góðar stundir.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg