fbpx

MULTICOLOURED

Uncategorized

Það er svo margt fallegt í  Zöru þessa dagana !

Ég mátaði þennan blazer þegar ég heimsótti verslunina í Paris í síðasta mánuði. Ég var (er) ótrúlega skotin í honum en sagði við sjálfa mig að skila honum aftur á slánna – ég ætti nóg af svörtum jökkum!

En nú vandast pínulítið málið.
Því núna rétt í þessu fór ég og skoðaði nýjar vörur inná heimasíðu Zöru og þar er jakkinn kominn nýr í öðrum lit.
Hvað geri ég þá !?
Ég á ekki nóg af svona fínum marglituðum jökkum. Á þá bara allsekkert til!
Hjálp.

Stundum er maður svo “veikur”!

xx,-EG-.

TRUE

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Bára

    12. April 2012

    Elska þennan neon appelsínugula bol :)

  2. inga

    12. April 2012

    YOLO ! keypt’ann , parísarlegur og svona ;o)

  3. Elisabet Gunnars

    12. April 2012

    YOLO ! ??
    En ég er að meta þetta …… aldrei að vita.

  4. Nanna

    12. April 2012

    Var einmitt að skoða þessa jakka á netinu um daginn – klikkaðir! Var hann ekkert síður að aftan þegar þú mátaðir hann? Fannst hann svo síður á myndinni á netinu svo ég ákvað að geyma hann aðeins… hvað fannst þér?

  5. inga

    16. April 2012

    you only live once !