Söngkonan Miley Cyrus hefur aldeilis náð að hneyksla alþjóð síðustu vikur. En það hefur líklegast ekki farið fram hjá neinum netvæddum einstakling að hegðun hennar hefur farið versnandi með hverju atvikinu af fætur öðru.
Ég rakst á þetta á vafrinu í kvöld og jii minn eini hvað ég er glöð fyrir hennar hönd að þarna var um að ræða eðlilegt atriði. Ég er heilluð af nýrri útgáfu af laginu “We Can´t Stop.”
Lagið var birt í Late Night with Jimmy Fallon og fær Cyrus þar félagsskap með hljómsveitinni The Roots, ásamt þáttastjórnandanum Jimmy.
Takk fyrir mig. Ég er búin að hlusta ansi oft á þetta í kvöld.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg