Lindex hefur undanfarin ár farið í samstarf við vinsæla hönnuði til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Síðast var það Missioni og nú er það orðið ljóst að breski hönnuðurinn Matthew Williamson á næsta samstarf.
Línan kemur í verslanir í október og er gefin út í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands um Bleiku Slaufuna hér á landi.
Matthew Williamson hefur síðustu árin framleitt lúxus vörulínur og því áhugavert að sjá hvað kemur frá honum í þessu samstarfi, þegar allir hafa efni á vörum hans.
Ég er virkilega hrifin af maxi kjólnum með klaufinni.
Ég elska svona samstörf !
Hlakka til að sjá meira.
xx,-EG-
Skrifa Innlegg